flugfréttir
Síðasta Boeing 787 þotan sem smíðuð er í Everett afhent
Síðasta Dreamliner-þotan dregin út úr samsetningarsalnum í Everett sl. laugardag
Boeing hefur lokið við samsetningu á síðustu Dreamliner-þotunni sem framleidd er í verksmiðjunum í Everett en héðan í frá verða Boeing 787 þoturnar einungis framleiddar í North Charleston í Suður-Karólínu.
Síðasta Dreamliner-þotan frá Everett er númer 1.095 sem smíðuð hefur verið frá upphafi
og fer hún í flugflota japanska flugfélagsins ANA (All Nippon Airways) sem var fyrsta flugfélagið
í heimi til þess að hefja áætlunarflug með Boeing 787 árið 2011.
Boeing 787 hefur verið smíðið í Everett í 16 ár eða frá því framleiðslan hófst árið 2004 og hafa vinsældir
vélarinnar verið töluverðar þrátt fyrir ýmiskonar vandamál og hefur Boeing fengið pantanir í yfir 1.500
Dreamliner-þotur frá upphafi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.