flugfréttir

Köttur réðst á flugstjóra í stjórnklefa á Boeing 737 þotu

- Þotunni snúið við til Khartoum skömmu eftir flugtak

1. mars 2021

|

Frétt skrifuð kl. 19:04

Þotan var komin 30 mínútur áleiðis þegar henni var snúið aftur við til Khartoum, höfuðborgar Súdan, sl. miðvikudag

Þota af gerðinni Boeing 737 þurfti að snúa við til Khartoum í Súdan í seinustu viku eftir að köttur réðst á flugstjóra í stjórnklefa vélarinnar skömmu eftir flugtak.

Um var að ræða farþegaflug á vegum súdanska flugfélagsins Tarco Airlines og var þotan komin 30 mínútur áleiðis á leið til Doha í Qatar sl. miðvikudag þegar flugmenn vélarinnar urðu varir fjórfættan laumufarþega sem skaut upp kollinum í flugstjórnarklefanum.

Flugmennirnir gerðu tilraun til þess að ná kettinum en án árangurs og brást kisi hinn versti við og réðst til atlögu og veittist að flugstjórann og var því ákveðið að snúa þotunni við til brottfararstaðar.

Í frétt á súdanska fréttamiðlinum Al-Sudani kemur fram að engin farþegi um borð reyndist vera eigandi kattarins og er því talið að hann hafi laumað sér um borð fyrir flugið.

Í frétt segir að þotan hafi verið inni í flugskýli á flugvellinum í Khartoum nóttina fyrir flugið þar sem flugvélin var undirbúin fyrir flugið til Doha auk þess sem farþegarýmið var þrifið og er talið mögulegt að kisa hafi laumað sér þá um borð og fundið sér notalegan stað til að sofa á í stjórnklefanum.

Flugfélagið Tarco Airlines var stofnað árið 2009 og hefur félagið ellefu flugvélar í flotanum, sex af gerðinni Boeing 737-300, þrjár af gerðinni 737-400, eina af gerðinni 737-500 og eina Fokker 50 flugvél.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga