flugfréttir

Norwegian hættir við 737 MAX

- Hætta við 92 þotur og reyna að selja 18 þotur sem félagið hefur fengið

4. mars 2021

|

Frétt skrifuð kl. 16:56

Norwegian hafði fengið 18 Boeing 737 MAX þotur afhentar og ætlar félagið að selja á næstunn tólf af þeim þotum

Norska lágfargjaldarfélagið Norwegian hefur ákveðið að hætta alfarið með Boeing 737 MAX þoturnar og halda sig einungis við Boeing 737-800.

Á sama tíma og flest flugfélög eru að undirbúa sig að hefja áætlunarflug að nýju með Boeing 737 MAX auk þess sem nokkur flugfélög eru byrjuð að fljúga þotunum þá hefur Norwegian tilkynnt að 737 MAX sé ekki hluti að flotastefnu félagsins lengur.

MAX þotan átti að vera stór hluti af framtíðarstefnu Norwegian og taka félagið upp í hæstu hæðir í samkeppninni við önnur evrópsk flugfélög en nú hefur komið í ljós að svo verður ekki.

Í febrúar greindi Norwegian frá því að félagið ætlaði sér að fækka um tólf 737 MAX þotur í flotanum en nú hefur Geir Karlsen, fjármálastjóri félagsins, greint frá því að Norwegian ætli að hætta við öll áform um MAX þoturnar og mun félagið líta til framtíðar án þess að hafa 737 MAX í myndinni.

Munu eingöngu hafa Boeing 737-800 í flotanum

Norwegian átti inni pöntun hjá Boeing í 110 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX 8 og var búið að afhenda 18 þotur til Norwegian áður en þær voru kyrrsettar í mars árið 2019.

Boeing 737 MAX þotur Norwegian á flugvellinum í Dublin

Félagið hefði því átt að fá 92 þotur til viðbótar á næstu árum en nú er ljóst að ekkert verður af þeim áformum en fram kemur Boeing og Norwegian eiga enn eftir að ganga endanlega frá samningnum varðandi afpöntunina.

Fram kemur að Norwegian hafi ráðið til sín japanska fyrirtækið Orix Aviation sem mun aðstoða Norwegian við að finna kaupanda að tólf af þeim 18 Boeing 737 MAX þotum sem félagið hefur fengið.

Þetta mun skilja Norwegian eftir með flugflota sem samanstendur aðeins af Boeing 737-800 þotum og hefur félagið 53 slíkar í flotanum. 50 verða notaðar í rekstri hverju sinni á meðan þrjár verða ávalt til taks sem varaflugvélar.

Þessar fréttir koma aðeins rúmri viku eftir að Norwegian greindi frá því að félagið hefði komist að samkomulagi við Airbus um að hætta við pöntun í allar þær þotur sem félagið hafði pantað úr A320neo fjölskyldunni en félagið átti von á 88 þotum og þar af 30 langdrægum þotum af gerðinni Airbus A321LR.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga