flugfréttir
Panta 24 Boeing 737 MAX þotur
Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX þotu í litum Flair Airlines
Bandaríska fyrirtækið 777 Partners hefur lagt inn pöntun til Boeing í 24 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX sem munu fara í flugflota kanadíska flugfélagsins Flair Airlines.
Boeing tilkynnti um samninginn fyrir helgi og kemur fram að um
sé að ræða pöntun í 24 þotur af gerðinni 737 MAX 8 með kauprétti
á sextíu þotum til viðbótar.
777 Partners er fjárfestingarfyrirtæki sem hefur höfuðstöðvar sínar
í Miami í Flórída en fyrirtækið á allan hlut í
lágfargjaldarfélaginu Flair Airlines.
Flair Airlines tilkynnti í janúar sl. um að félagið myndi panta þrettán
Boeing 737 MAX þotur sem yrðu teknar á leigu frá móðurfélaginu 777
Partners og á félagið því von á að vera komið með 37 Boeing 737 MAX
þotur á næstu árum.
Í dag hefur Flair Airlines þrjár Boeing 737-800 þotur í flotanum og
flýgur félagið til ellefu áfangastaða í Kanada en félagið hefur
höfuðstöðvar í Edmonton en er einnig með bækistöðvar í Vancouver.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.