flugfréttir

Ná varla að anna eftirspurn eftir flugi til Mallorca

- Eurowings bætir við 300 flugferðum yfir páskana til Palma

15. mars 2021

|

Frétt skrifuð kl. 12:31

Airbus A320 þota frá Eurowings á flugvellinum í Dusseldorf í Þýskalandi

Sprengja hefur orðið í bókunum á flugsætum til Mallorca yfir páskana hjá þýska flugfélaginu Eurowings eftir að Robert Koch sóttvarnarstofnunin þýska lækkaði áhættustig vegna COVID-19 fyrir spænsku Baleareyjurnar sem nú eru skilgreindar sem öruggur staður fyrir ferðamenn vegna fárra smita.

Eurowings hefur þurft að bregðast við eftirspurninni og hefur félagið bætt við 300 flugferðum með mjög skömmum fyrirvara til Palma frá Dusseldorf, Hamborg, Köln og Stuttgart.

Um leið og sóttvarnarstofnunin tók nokkur svæði á Spáni og Portúgal af lista yfir áhættusvæði fór Eurowings að fá óhemju mikið af bókunum á flugi og varð mikið álag á bókunarkerfi félagsins og var uppbókað í öll flug til Mallorca yfir páskana á nokkrum klukkutímum.

Félagið bætti um helgina við 300 flugferðum í flugáætlun sína yfir páskana en félagið var þegar búið að auka framboðið með því að gera ráð fyrir stærri þotum fyrir páskaflug til Mallorca.

Þá hefur Eurowings einnig fundið fyrir mikilli aukningu í bókunum til annarra áfangastaða yfir páskana en að öðru leyti þá flýgur Eurowings frá Mallorca til 22 áfangastaða í Þýskalandi, Austurríki og í Sviss yfir sumartímann.

Fram kemur að aðeins þeir farþegar sem geta framvísað neikvæðum niðurstöðum úr skimun vegna kórónaveirunnar fá að fara um borð í flug til Mallorca en Iago Negueruela, ferðamálaráðherra á Baleareyjum, segir að í augnablikinu sé Mallorca öruggasti staðurinn fyrir ferðamenn í Miðjarðarhafinu er kemur að smitum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga