flugfréttir

Fór út af braut í lendingu og endaði á vindpokanum

18. mars 2021

|

Frétt skrifuð kl. 12:57

Ljósmynd úr skýrslu frá NTSB varðandi atvikið

Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) hefur gefið frá sér skýrslu varðandi atvik sem átti sér stað í Michigan í Bandaríkjunum er flugmaður á lítilli flugvél fór út af braut í lendingu og endaði á vindpokastaur.

Fram kemur að um var að ræða stélhjólsflugvél af gerðinni Piper PA-12 Super Cruiser sem var að lenda á flugvellinum í bænum Mecosta, skammt norðvestur af Detroit, þann 23. mars árið 2019.

Breytileg vindátt var á brautinni er flugvélin var að lenda en í lendingarbruninu fór flugvélin að rása til hægri og fór út af brautinni og endaði á vindpokanum með þeim afleiðingum að miklar skemmdir urðu á hægri væng vélarinnar.

Veðurupplýsingar frá næsta flugvelli gáfu til kynna að vindáttin var 340° gráður með vindstyrk upp á 7 hnúta en flugmaðurinn var að lenda á braut 36.

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar kemur fram að orsök atviksins sé mistök flugmanns við að halda réttri stefnu meðfram flugbrautinni í lendingarbruninu sem varð til þess að flugvélin fór út af brautinni.

Flugmaður vélarinnar, karlmaður á fimmtugsaldri, og farþegi sem var með honum um borð, sluppu báðir án meiðsla. Flugmaðurinn var með einkaflugmannsskírteini og 490 flugtíma að baki og þar af 52 tíma á þessa flugvélategund.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga