flugfréttir

Southwest pantar allt að 255 Boeing 737 MAX þotur

29. mars 2021

|

Frétt skrifuð kl. 11:58

Boeing 737 MAX þota Southwest Airlines í lendingu í Fort Lauderdale í Flórída þann 13. mars síðastliðinn

Boeing hefur tilkynnt um eina stærstu pöntun sem flugvélaframleiðandinn hefur fengið í Boeing 737 MAX þoturnar en pöntunin kemur frá bandaríska flugfélaginu Southwest Airlines.

Southwest Airlines hefur lagt inn staðfesta pöntun í 100 Boeinig 737 MAX þotur með möguleika á 155 þotum til viðbótar og hljóðar pöntunin því upp á 255 þotur ef kauprétturinn á þotunum 155 verður einnig nýttur.

Til viðbótar við pöntunina þá hefur Southwest Airlines einnig pantað auka aðgengi sitt að stafrænni þjónustu frá Boeing er nefnist Airplane Health Management og Maintenance Performance Toolbox en með flugvélapöntuninni er heildafjöldi þeirra flugvéla, sem Southwest Airlines á von á að fá afhentar, kominn yfir 600 þotur.

„Þær skuldbindinga sem við höfum gert í dag endurspeglar áframhaldandi traust sem við gerum til Boeing 737 flugvélarinnar sem mun þjóna okkar starfsfólki og viðskiptavinum okkar næstu árin“, segir Gary Kelly, framkvæmdastjóri Southwest Airlines.

Southwest Airlines á von á að fá tvö hundruð Boeing 737 MAX 7 þotur afhentar og 180 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX 8 en félagið hefur nú þegar fengið 36 MAX þotur afhentar og mun enda árið 2021 með 69 Boeing 737 MAX þotum í flotanum.

Flugfélagið bandaríska byrjaði að fljúga 737 MAX þotunum á ný í byrjun mars og var félagið það seinasta til þess að hefja aftur flug með þotunum af bandarísku flugfélögunum eftir að kyrrsetningu þeirra var aflétt.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga