flugfréttir

JetBlue fær úthlutað plássum á London Heathrow

- Stefna á að hefja flug yfir Atlantshafið í sumar

29. mars 2021

|

Frétt skrifuð kl. 13:14

Airbus A321 þota frá jetBlue í flugtaki

Bandaríska lágfargjaldafélagið jetBlue hefur fengið úthlutað lendingarplássum á Heathrow-flugvellinum í London en þetta kemur fram í yfirlýsingu frá fyrirtækinu Airport Coordination Limited (ACL) sem sér um úthlutanir á plássum á flugvöllum til flugfélaga.

Næstum því tvö ár eru liðin frá því að jetBlue tilkynnti um fyrirhugað flug yfir Atlantshafið frá Bandaríkjunum til London en félagið hefur síðan þá reynt að fá úthlutað plássum á Heathrow.

Fram kemur að jetBlue muni fá úthlutað plássum á Heathrow-flugvellinum stax fyrir sumarið 2021 og fær félagið 270 pláss í sumar en af þeim eru 180 pláss fyrir áætlunarflug á milli London og JFK-flugvallarins í New York og 90 plássum hefur verið úthlutað fyrir flug á milli London Heathrow og Boston.

JetBlue mun fá aðstöðu á Terminal 2 flugstöðinni en ekki hefur enn verið tilkynnt nein dagsetning varðandi hvenær félagið mun fljúga sitt fyrsta flug til London.

Flug jetBlue yfir Atlantshafið til Evrópu á eftir að marka tímamót í 21 árs sögu félagsins sem hefur hingað til eingöngu flogið til áfangastaða bæði í Norður-Ameríku og Suður-Ameríku en flugfélagið hefur mestu umsvif sín í innanlandsflugi innan Bandaríkjanna auk þess sem félagið flýgur til fjölmargra áfangastaða í Karíbahafinu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga