flugfréttir

Mike og Hotel nýjar akbrautir á Reykjavíkurflugvelli

- Tveir hlutar af gömlu 06/24 brautinni fá nöfn akbrauta

8. apríl 2021

|

Frétt skrifuð kl. 20:06

Akbrautirnar Mike og Hotel verða teknar formlega í notkun á morgun, föstudaginn 9. apríl klukkan 7:00

Í fyrramálið verða tvær nýjar akbrautir teknar í notkun á Reykjavíkurflugvelli og hefur Isavia sent frá sér kynningarefni auk myndbands þar sem akbrautirnar tvær eru kynntar fyrir flugmönnum.

Ekki eru um að ræða nýjar akbrautir sem hefur bætt við heldur er hér á ferðinni tveir hlutar af gömlu flugbrautinni 06/24 sem var tekin úr notkun árið 2015 og hafa þessir hlutar fengið úthlutað nafn akbrauta (taxiway).

Um er að ræða akbrautir M (Mike) og H (Hotel) en Mike tengir saman braut 13/31 og braut 01/19 á meðan Hotel er sá hluti 06/24 sem liggur austanmegn við braut 01/19 og er því stubburinn sem tengir 01/19 við akbraut Alpha.

Akbrautirnar tvær verða teknar í notkun á morgun, föstudaginn 9.apríl, en gildandi NOTAM sem lokar brautunum verður fellt út gildi kl. 07:00 að morgni 9.apríl.

Kort af akbrautunum á Reykjavíkurflugvelli

Í tilkynningu frá Isavia eru notendur Reykjavíkurflugvallar hvattir til þess að kynna sér vandað myndband sem hefur verið útbúið vegna þessara beytinga og dreifa því vítt og breitt og segir ennfremur að forsvarsmenn flugskólanna mega sérstaklega hafa sína nemendur í huga.

Í meðfylgjandi myndbandi hér að neðan má sjá ítarlega kynningu á akbrautunum auk þess sem farið er yfir allar helstu mögulegar akstursleiðir um Mike og Hotel miðað við lendingar og flugtök á brautum 13/31 og 01/19.

Benda má á að til þess að auðvelda leiðina til að muna hvort hlutinn af braut 06/24 er Mike og hvort er Hotel þá er akbraut Hotel nær hótelinu Hotel Natura sem áður hét Hótel Loftleiðir.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga