flugfréttir
Sex risaþotur í flota BA hafa lokið skoðun á Heathrow
Airbus A380 risaþota British Airways
Allar þær sex Airbus A380 risaþotur frá British Airways, sem geymdar hafa verið á flugvellinum í Madríd vegna COVID-19, hafa nú gengist undir viðhaldsskoðun í London en risaþotunum sex hefur verið flogið til skiptist til London og til baka til Madrídar frá því í febrúar.
Síðasta risaþotan er nú komin aftur til baka til Madríd en þeirri fyrstu var flogið til London þann 23. febrúar
en þar sem þoturnar sex hafa verið í tímabundinni geymslu hafa þær þurft að gangast undir reglubundna
viðhaldsskoðun til að halda lofthæfi þeirra í gildi sem hefði ekki verið nauðsynlegt ef þeim hefði verið
lagt í langtímageymslu líkt og þeim Airbus A380 risaþotum sem ekki er búist við að muni fljúga nærri því strax.
Risaþotan með skráninguna G-XLEH var síðasta risaþotan til að gangast undir skoðun í London en henni
var flogið frá Madríd til London Heathrow þann 13. apríl sl. og var flogið aftur til Madrídar í morgun.
Risaþoturnar, sem geymdar hafa verið í Madríd, hefur verið haldið í því ástandi að þær eru tiltækar til farþegaflugs með skömmum fyrirvara
um leið og eftirspurnin eykst að nýju og verður því hægt að ferja þær til London Heathrow og undirbúa
þær inn í leiðarkerfið á nokkrum dögum.
British Airways hefur hinsvear 12 risaþotur í flotanum en þrjár eru í langtímageymslu á flugvellinum
í Teruel á Spáni á meðan aðrar þrjár eru í langtímageymslu í Doha í Qatar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.