flugfréttir
Delta pantar 25 Airbus A321neo þotur til viðbótar
Tölvugerð mynd af Airbus A321neo í litum Delta Air Lines
Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines tilkynnti í gær að félagið hefði lagt inn pöntun til Airbus í 25 farþegaþotur til viðbótar af gerðinni Airbus A321neo.
Delta Air Lines er með þessu að breyta möguleika á pöntun sem gerð var samhliða
annarri pöntun á sínum tíma í staðfesta pöntun og mun heildarfjöldi Airbus A321neo
þotna, sem félagið á von á að fá afhentar, fara upp í 125 þotur.
Þá ákvað félagið einnig að tryggja sér kauprétt á 25 þotum til viðbótar og hefur félagið því í dag kauprétt á 100 Airbus A321neo þotum sem félagið getur breytt í staðfestar pantanir síðar.
Delta Air Lines mun nota Airbus A321neo þoturnar til þess að leysa af hólmi
eldri þotur á borð við Boeing 757-200 þotunum.
Delta Air Lines hefur ekki enn fengið neina Airbus A321neo þotu afhenta en þær fyrstu verða afhentar á fyrri helming ársins 2022. Þá hefur félagið einnig flýtt fyrir afhendingum
á þremur breiðþotum af gerðinni Airbus A350-900 og einni Airbus A330-900neo
breiðþotu til ársins 2022.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.