flugfréttir
24 flugmenn ráðnir til baka hjá Icelandair
Boeing 757 þota Icelandair í lendingu á flugvellinum í Brussel í Belgíu
Icelandair ætlar að ráða 24 flugmenn aftur til starfa sem bætast við þá 160 flugmenn sem nú þegar hafa verið að störfum hjá félaginu.
Flugmennirnir tuttugu og fjórir bætast þá við þá 18 flugmenn sem munu hefja störf til viðbótar í næstu viku
en félagið tilkynnti um þá endurráðningu fyrr í þessum mánuði.
Ástæða þess að Icelandair er að fjölga flugmönnum er sögð vera vegna aukningu á framboði eftir flugferðum
á næstunni enda sumarið einn annasamasti ferðatími ársins en ljóst er að sumarið verður líkt og í fyrra
mun umsvifaminna vegna heimsfaraldursins.
Gert er ráð fyrir að um 180 til 200 flugmenn muni fljúga hjá Icelandair í sumar enn fjöldi flugmanna fer
aftir þróun mála vegna COVID-19 og mun spila þar inn í fjöldi farþega sem ferðast á milli Norður-Ameríku
og Evrópu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.