flugfréttir

Jet2.com og Jet2CityBreaks flýta Íslandsfluginu um mánuð

5. maí 2021

|

Frétt skrifuð kl. 23:44

Boeing 737 þota frá breska lágfargjaldarfélaginu Jet2.com á Keflavíkurflugvelli

Breska flugfélagið Jet2.com og Jet2CityBreaks hefur ákveðið að flýta um mánuð áætlunum sínum um flug og borgarferðir frá Manchester á Englandi til Íslands.

Þetta er gert vegna mikillar eftirspurnar eftir ferðum til Íslands og væntinga um að Ísland verði skilgreint sem grænt land á lista breskra stjórnvalda þegar áformað er að aflétta banni á ónauðsynleg ferðalög frá Bretlandi um miðjan maímánuð.

Auk ferða til Manchester verður einnig boðið upp á reglulegt flug og borgarferðir frá Birmingham. Flogið verður tvisvar í viku milli borganna, á mánudögum og fimmtudögum. Manchester-flugið hefst 2. september og Birmingham-flugið 30. september. Flogið verður til 22. nóvember 2021. Þá hefst Manchester-flug að nýju 10. febrúar og stendur til 10. nóvember 2022. Flogið verður til og frá Birmingham frá 10. febrúar til 25. apríl 2022.

Hægt verður að kaupa stakt flugfar með Jet2.com eða pakkaferð til Íslands með Jet2City Breaks. Þannig er komið til móts við eftirspurn í Bretlandi eftir ferðum til Íslands og bættar tengingar til Birmingham og Manchester fyrir Íslendinga.

Félagið ætlar einnig að bjóða upp á 37 pakkaferðir á tímabilinu frá sjö öðrum flugvöllum á Bretlandseyjum – frá Belfast-flugvelli, East-Midlands-flugvelli í Derby, Leeds-Bradford-flugvelli, Glasgow, Edinborg, Newcastle og London Stansted.

Jet2.com og Jet2CityBreaks hófu flug til Íslands árið 2019. Steve Heapy, forstjóri Jet2.com og Jet2holidays, segir að mikil eftirspurn sé eftir flugi til Íslands. Það sé búist við því að Ísland verði á lista breskra stjórnvalda yfir græn lönd vegna Covid-19. „Þegar vissa er fyrir hendi um aðgerðir í faraldrinum eru fjöldamargir viðskiptavinir tilbúnir að bóka flug.“

„Við á Keflavíkurflugvelli erum afar ánægð að heyra að Jet2.com og Jet2CityBreaks hafi ákveðið að bæta við áætlun sína og fögnum áframhaldandi góðu samstarfi við félagið,“ segir Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Isavia. „Við sjáum að það er sívaxandi áhugi á Íslandi sem áfangastað eftir að heimsfaraldrinum er lokið og þessi ákvörðun staðfestir þau merki sem við höfum séð um það.“







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga