flugfréttir

Telur að vandamál með rafkerfið verði auðvelt að laga

- FAA enn að fara yfir leiðbeiningar frá Boeing

12. maí 2021

|

Frétt skrifuð kl. 22:44

Fram kemur að vandamálið nái til yfir 100 Boeing 737 MAX þotna

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa lýst því yfir að þær lagfæringar sem þarf að gera er varðar rafkerfi á Boeing 737 MAX þotunum verði unnt að lagfæra með tiltölulega einföldum hætti.

Stephen Dickson, yfirmaður FAA, lýsti þessu yfir í dag en án þess að gefa upp hvenær áætla megi að leiðbeiningar frá Boeing. er varðar lagfæringar á nýjasta vandamálinu, verða tilbúnar fyrir flugrekendur.

Fram kemur að vandamálið nái til yfir 100 Boeing 737 MAX þotna og bíða flugfélög eftir því að leiðbeiningarnar verði tilbúnar svo hægt verði að fara eftir þeim og hefjast handa og koma þotunum aftur í loftið.

Dickson segir að bandarísk flugmálayfirvöld séu enn að vinna að því að rannsaka hvernig breyting á verkferlum á uppsetningu á rafkerfi í verksmiðjunum í Renton náði að hafa þessi áhrif auk þess sem verið er að athuga hvort að vandamálið sé víðtækara en gert er ráð fyrir.

„Ég hef tvímælalaust mjög góða trú á þessari flugvél og öryggi hennar. Eiginleikar hennar eru mjög góðir og eiginlega þá eru þoturnar að standa sig mun betur en margar aðrar sem eru í umferð“, segir Dickson.

Boeing tekur fram að frá því að Boeing 737 MAX þoturnar hófu sig aftur á loft eftir 20 mánaða kyrrsetningu að þá hafi þær í dag flogið yfir 30.000 flugferðir hjá 21 flugfélagi án neinna atvika.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga