flugfréttir

Fisflugmenn í miðnæturhópflugi kringum borgina

- Þrettán fisflugvélar tóku þátt í hópflugi í gærkvöldi

13. maí 2021

|

Frétt skrifuð kl. 14:57

Skáskot af myndbandi sem tekið var út um TF-MET í gær í hópfluginu

Íslenskir fisflugmenn vöktu talsverða athygli í gær er þeir skelltu sér nokkrir saman í hópflug í kringum Höfuðborgarsvæðið í gær rétt fyrir miðnætti.

Alls voru 13 fisflugvélar sem tóku þátt í hópfluginu en lagt var af stað frá fisflugvellinum á Hólmsheiði og fór fyrsta flugvélin í loftið rétt fyrir klukkan 23:00 í gærkvöldi og fóru síðan tólf aðrar fisflugvélar á loft með mínútu millibili.

Fisflugvélarnar nýttu sér það tækifæri sem skapast þegar það bjart er orðið á kvöldin á sama tíma og loftrýmið yfir Reykjavík breytist í G-loftrými eftir að Reykjavíkurflugvöllur lokar klukkan 23:00 sem þýðir að lofthelgin yfir borginni verður opið og óstjórnað loftrými þar til klukkan 7:00 um morguninn.

Fisflugvélarnar á flögri sunnan við Vellina í Hafnarfirði í gær

Fisflugvélarnar þrettán flugu réttsælis hring í kringum borgina frá fisflugvellinum á Heiði í áttina að Heiðmörk og þaðan suður fyrir Vellina í Hafnarfirði og því næst til norðurs yfir Álftanes og að Skerjafirði.

Eftir það var stefnan tekin að Gróttu og loks farið til austur eftir ströndinni meðfram Austurbænum í átt að Geldinganesi að Blikastöðum og því næst haldið aftur upp á Heiði þar sem lent var rétt fyrir miðnætti áður en ljósaskiptin tóku formlega við klukkan 23:55.

Hér að neðan má sjá stutt myndband sem tekið var í gær úr flugtúrnum:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga