flugfréttir

Polderbaan tekin í notkun eftir viðamiklar framkvæmdir

17. maí 2021

|

Frétt skrifuð kl. 12:13

Boeing 737 þota frá Transavia á Polderbaan-flugbrautinni á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam í Hollandi

Polderbaan-flugbrautin á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam hefur aftur verið tekin í notkun eftir viðamiklar framkvæmdir sem staðið hafa yfir sl. þrjá og hálfan mánuð.

Polderbaan er þekkt fyrir að vera staðsett langt í burtu frá Schiphol-flugvellinum sjálfum en akbrautarvegalengdin frá flugbrautinni að flughlaðinu við næstu flugstöð eru yfir 3 kílómetrar og getur tekið yfir 10 til 15 mínútur fyrir flugvélar að aka að flugstöðinni eftir að lent er á Polderbaan.

Flugbrautin, sem hefur stefnurnar 18R/36L, var seinast notuð í lok janúar á þessu ári en var tekin aftur í notkun þann 15. maí síðastliðinn og er í augnablikinu eingöngu notuð við venjuleg veðurskilyrði í góðu skyggni.

Þann 10. og 14. maí fóru fram prófanir á aðflugi að flugbrautinni þar sem virkni og nákvæmni á blindaðflugsbúnaði voru prófuð en flugbrautin hefur bæði ILS blindaðflugskerfi og PAPI-ljósabúnað.

Malbikun í gangi á Polderbaan-flugbrautinni

Nýja ILS blindaðflugskerfið þarf að nota við venjuleg skilyrði í 30 daga samkvæmt reglugerð áður en hægt verður að nota kerfið fyrir lendingar í takmörkuðu skyggni til þess að fá reynslu á nákvæmni búnaðarins eftir framkvæmdirnar.

Þær framkvæmdir sem staðið hafa yfir eru meðal annars endurnýjun á yfirlagi brautarinnar sem telur 600.000 fermetra og fóru í það 150.000 tonn af malbiki en 60% af því yfirlagi sem var fjarlægt af brautinni var endurnýtt og notað í blöndu af malbiki sem kallast Flightflex.

Þá voru lagðar 70 kílómetrar af leiðslum og rafmagnslínum og um 2.100 flugbrautarljós endurnýjuð á brautinni með LED-ljósum en allar framkvæmdirnar voru það viðamiklar að ekki verður þörf á neinu umfangsmiklu viðhaldi á brautinni næstu 7 árin að undanskildu hefðbundnu viðhaldi sem fer fram árlega.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga