flugfréttir
Airbus undirbýr lokun á verksmiðju á Spáni
- Ekki lengur not fyrir verksmiðju sem framleiddi íhluti fyrir A380
Airbus mun annað hvort loka verksmiðjunni í Puerto Real eða í Cadiz
Airbus undirbýr lokun á þeim verksmiðjum þar sem íhlutir í risaþotuna Airbus A380 hafa verið framleiddir en meðal annars mun önnur af tveimur verksmiðjum Airbus á Spáni loka þar sem ekki eru nein verkefni framundan er varðar risaþotuna.
Airbus hefur tvær verksmiðjur á Spáni, önnur staðsett í Puerto Real og hin í Cadiz. Enn er ekki vitað hvor verksmiðjan
mun loka en mótmæli fóru fram fyrir framan verksmiðjuna í Puerto Real þar sem starfsmenn mótmæltu fyrirhugaðri lokun.
Í verksmiðjunni í Puerto Real fór fram framleiðsla á láréttum stélflötum (horizontal stabilizer) fyrir A380 risaþotuna
og hafa þar starfað um 460 starfsmenn.
Verksmiðjurnar á Spáni eru ekki þær einu sem til stendur að loka því óvissa hefur ríkt um verksmiðjur Airbus í Broughton á
Englandi sem hefur staðið tóm frá því í fyrra eftir að seinustu vængir risaþotunnar voru afhentir.
Hinsvegar ríkir bjartsýni um að starfsemi verksmiðjunnar í Broughton fari aftur í gang þar sem Airbus segir að mögulega verði hægt
að nota hana fyrir framleiðslu á íhlutum fyrir aðrar þotur sem Airbus framleiðir.
Airbus tilkynnti um endalok á framleiðslu á risaþotunni árið 2019 en eftir að heimsfaraldurinn skall á má segja að framtíð
Airbus A380 var endanlega ráðin.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.