flugfréttir

3.000 flugdólgsatvik vestanhafs það sem af er ári

- Fara fram á mun harðari refsingar og hærri sektir

21. júní 2021

|

Frétt skrifuð kl. 20:10

Í bréfi sem sent hefur verið til dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna kemur fram að taka þarf upp mjög harðar refsingar gagnvart flugdólgum

Nokkur flugfélög vestanhafs og verkalýðsfélög flugmanna og áhafna hafa sett aukinn þrýsting á bandarísk stjórnvöld til þess að herða viðurlög og setja á strangar refsingar gagnvart flugdólgum en atvikum þar sem flug hefur raskast vegna dólgsláta um borð hefur fjölgað töluvert undanfarin misseri.

Í bréfi sem sent hefur verið til dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna kemur fram að taka þarf upp mjög harðar refsingar gagnvart flugdólgum umfram þau viðurlög sem bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa kynnt til sögunnar sem flugfélög telja að séu ekki nógu viðtæk.

„Stjórnvöld þurfa að senda út skýr skilaboð með yfirlýsingu sem útskýrir refsirammann sem notast verður við í samræmi við alþjóðareglugerðir í fluginu svo hægt sé að tryggja flugöryggi“, segir meðal annars í bréfi frá nokkrum hagsmundaaðilum og þar á meðal samtökunum Airlines for America og nokkrum starfsmannafélögum flugfreyja og flugþjóna.

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) tóku nýlega upp hertar aðgerðir gegn flugdólgum en að undanförnu hefur verið sektað í 20 aðskildum málum með sektum upp á samtals 37 milljónum króna.

Það sem af er þessu ári hefur verið tilkynnt um 3.000 flugdólgsatvik í farþegaflugi í Bandaríkjunum sem samsvarar því að flugdólgar séu að gera farþegum og áhöfnum lífið leitt að meðaltali 17 sinnum á dag en í flestum tilvikum er verið að ógna öryggi farþega og flugvéla með einhverjum hætti.

Í mörgum af þessum tilvikum sem hafa komið upp á þessu ári er um að ræða farþega sem vildu ekki vera með andlitsgrímu um borð vegna COVID-19 sem leiddi til ágreinings og í sumum tilvikum hefur komið til handalögmála.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga