flugfréttir

Eurowings Discover nýtt dótturfélag Lufthansa Group

- Fljúga jómfrúarflugið í dag til Kenýa og Tanzaníu

24. júlí 2021

|

Frétt skrifuð kl. 12:23

Airbus A330-200 breiðþota Eurowings Discover

Lufthansa Group hefur kynnt til sögunnar nýtt dótturflugfélag sem nefnist Eurowings Discover en félagið mun fljúga í dag sitt fyrsta áætlunarflug frá Frankfurt til Mombasa til Kenýa og þaðan áfram til Zanzibar í Tansaníu.

Eurowings Discover mun hefja flugresktur með tvær Airbus A330-200 breiðþotur og eru frekari umsvif í kortunum þar sem Lufthansa Group sér fram á tækifæri í skemmtiferðum til fjarlægra áfangastaða á meðan eftirspurn eftir langflugi á fyrsta farrými er enn í dvala vegna heimsfaraldursins.

Jómfrúarflugið verður flogið frá Frankfurt klukkan 19:35 að staðartíma og er áætluð lending í Mombasa klukkan 5:10 í nótt. Þaðan tekur við stutt flug yfir til Zanzibar og er áætluð brottför til baka til Frankfurt kl. 11:00 í fyrramálið og er gert ráð fyrir að lenda í Frankfurt klukkan 18:40 annað kvöld.

Eurowings Discover gerir ráð fyrir að bæta við 10 þotum til viðbótar í flotann fyrir lok ársins og er áætlað að fyrir sumarið 2022 verði félagið komið með 21 þotu í rekstur og mun flotinn samanstanda þá af tíu Airbus A320 þotum og ellefu Airbus A330 breiðþotum.

Fyrstu Airbus A330-200 þoturnar koma úr flota flugfélagisns Edelweiss sem er einnig dótturfélag Lufthansa Group sem hefur hætt með allar þær fjórar A330-200 þotur sem félagið hafði en félagið mun nota áfram fjórar Airbus A340-300 breiðþotur auk þess sem félagið hefur tíu Airbus A320 þotur í flotanum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga