flugfréttir
LATAM pantar 28 Airbus A320neo þotur til viðbótar
Airbus A320neo þota í litum LATAM
Flugfélagið LATAM í Suður-Ameríku hefur gert samkomulag við Airbus um pöntun á 28 farþegaþotum til viðbótar af gerðinni Airbus A320neo.
Í yfirlýsingu frá LATAM segir að pöntunin eigi eftir að gera stærsta flugfélag Suður-Ameríku enn hagkvæmara og umhverfisvænna þegar þoturnar bætast við í flotann en nú þegar á flugfélagið von á 23 þotum frá Airbus af gerðinni Airbus A320 og 19 af gerðinni A321neo.
Flestar farþegaþotur í flota LATAM er af Airbus-tegund og flestar af gerðinni Airbus A319,
A320 og Airbus A321 en félagið hefur einnig breiðþotur frá Boeing af gerðinni
Boeing 767, 777 og Boeing 787.
LATAM Brasil er stærsta dótturfélagið í LATAM Group samsteypunni en LATAM hefur dótturfélög einnig í Chile, Kólumbíu, Ecuador, Mexíkó, Paragvæ og í Perú en LATAM Argentina hætti hinsvegar rekstri í fyrra.
Samanlagður flugfloti LATAM telur 329 flugvélar en 150 af þeim eru af gerðinni Airbus A320.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.