flugfréttir
Delta pantar 30 A321neo þotur til viðbótar
Airbus A321 þota í litum Delta Air Lines
Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines hefur lagt inn pöntun til Airbus í 30 farþegaþotur til viðbótar af gerðinni Airbus A321neo.
Með því ætlar félagið að tryggja sér að hægt verði að uppfylla þá eftirspurn sem talið er að eigi eftir að verða
í framtíðinni er kemur að farþegaflugi en nú þegar á Delta Air Lines von á 125 þotum af þessari gerð og
á flugfélagið því von á samtals 155 Airbus A321neo þotum.
Airbus A321neo þoturnar sem Delta á von á koma með hreyflum af gerðinni PW1100G frá
Pratt & Whitney og taka þær 194 farþega.
Delta Air Lines á von á að fá fyrstu Airbus A321neo þotuna afhenta snemma á næsta ári en þá á
flugfélagið einnig von á 110 þotum frá Airbus af gerðinni Airbus A220 (CSeries), Airbus A321, Airbus A330-900,
auk Airbus A350.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.