flugfréttir
Vinnuvernd viðurkennt sem fluglæknasetur
Fluglæknar hjá Vinnuvernd ehf. eru til húsa í Holtasmára 1 í Kópavogi
Samgöngustofa viðurkenndi nýlega starfsemi Vinnuverndar á sviði fluglækninga sem fluglæknasetur (Aero-medical center) en sú viðurkenning hefur m.a. það í för með sér að fyrirtækið getur nú sinnt öllum heilbrigðisskoðunum flugfólks m.a. hjá nýliðum sem fara í sína fyrstu heilbrigðisskoðun.
Vinnuvernd ehf. hefur frá upphafi árs 2015 sinnt heilbrigðisskoðunum flugfólks og starfa nú fjórir fluglæknar á vegum Vinnuverndar en
strangar reglur gilda um þjálfun og störf fluglækna. Hér á landi er það Samgöngustofa sem hefur eftirlit með starfsemi þeirra.
Fluglæknar Vinnuverndar hafa sótt námskeið erlendis og undirgengist próf til þess að afla sér réttinda sem fluglæknar auk þess sem Vinnuvernd hefur staðist
þær gæðakröfur sem gerðar eru til starfseminnar.
Nýtt merki Vinnuverndar
”Þetta er sérstaklega ánægjulegt skref fyrir okkur hjá Vinnuvernd en ekki síður fyrir fluggeirann á Íslandi. Við munum áfram sinna vandaðri og áreiðanlegri þjónustu við flugfólkið og þetta er í sjálfu sér eðlilegt skref í að efla starfsemina” segir Atli Einarsson, fluglæknir sem leitt hefur uppbyggingu Vinnuverndar í tengslum við flugið.
Aðsetur Vinnuverndar er í Holtasmára 1 í Kópavogi og tímapantanir í síma 578 0800 og í gegnum netfangið mottaka@vinnuvernd.is
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.