flugfréttir

Jet Airways stefnir á endurkomu eftir áramót

13. september 2021

|

Frétt skrifuð kl. 18:36

Flugfloti Jet Airways í flugskýli á flugvellinum í Hyderabad á Indlandi

Indverska flugfélagið Jet Airways hefur gert enn önnur áformin um að hefja flugrekstur á ný og er þetta þriðja tilraunin sem gerð verður til þess að koma starfsemi félagsins aftur í gang.

Jet Airways hætti starfsemi sinni í apríl árið 2019 í kjölfar erfiðra fjárhagsörðuleika sem varð til þess að félagið lýsti yfir gjaldþroti en Jet Airways var eina flugfélagið á Indlandi sem bauð upp á fulla þjónustu fyrir utan Air India en öll önnur indversk flugfélög eru lágfargjaldafélög.

Eigendur Jet Airways hafa lýst því yfir að til stendur að félagið hefji aftur áætlunarflug á fyrsta ársfjórðungi ársins 2022 en vonir voru bundnar við að félagið myndi hefja sig til flugs að nýju fyrir lok þessa árs.

Gert er ráð fyrir að flugfélagið verði komið með 50 þotur í rekstur innan þriggja ára og 100 þotur innan fimm ára en flugflotinn taldi 119 þotur fyrir gjaldþrot þess fyrir tveimur árum síðan.

Jet Airways fékk leyfi í júní til þess að hefja áætlunarflug aftur og í ágúst byrjaði félagið að auglýsa aftur eftir flugmönnum og er nú reynt að koma starfseminni í gang eftir áramót.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga