flugfréttir

Spá farþegafjölda upp á 8 milljónir um KEF árið 2024

7. október 2021

|

Frétt skrifuð kl. 16:07

Gangi bjartsýnasta spáin fyrir árið 2024 eftir og farþegar um Keflavíkurflugvöll verða tæpar 7,9 milljónir talsins yrði það þriðji mesti farþegafjöldi sem farið hefur um flugvöllinn

Ný samantekt Isavia um mögulegan fjölda farþega um Keflavíkurflugvöll næstu þrjú árin sýnir að ef bjartsýnustu spár ganga eftir gætu fleiri farþegar farið um flugvöllinn árið 2024 en árið 2019, þ.e. áður en Covid-19 heimsfaraldurinn skall á.

Rúmlega 7 milljónir farþegar fóru um völlinn árið 2019 en í fyrra voru þeir aðeins 1,3 milljónir í samdrættinum vegna faraldursins. Sviðsmyndir félagsins gera ráð fyrir að þeir verði um 2,2 milljónir í ár, á bilinu 4-5 milljónir á næsta ári, 4-6 milljónir 2023 og síðan á bilinu 5,5 til 7,9 árið 2024.

Samantekt þessi er ekki eiginleg farþegaspá eins og Isavia gaf út árlega fyrir heimsfaraldurinn. Síðasta farþegaspá, fyrir árið 2020, kom út í lok árs 2019. Síðan þá hefur fullkomin óvissa verið í flugheiminum vegna Covid og ómögulegt að spá nokkru um þróun mála.

„Þessar sviðsmyndir sem hér um ræðir eru gerðar m.a. til að auðvelda rekstraraðilum á flugvellinum að gera áætlanir fram í tímann og setja fram mögulegar forsendur, t.d. í samkeppni um aðstöðu fyrir þjónustu á vellinum,“ segir Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Isavia. „Við gerð þessara farþegaforsendna var m.a. stuðst við opinberlega birtar áætlanir flugfélaga sem fljúga um Keflavíkurflugvöll.“

Rúmlega 7 milljónir farþegar fóru um völlinn árið 2019 en í fyrra voru þeir aðeins 1,3 milljónir í samdrættinum vegna faraldursins

Gangi bjartsýnasta spáin fyrir árið 2024 eftir og farþegar um Keflavíkurflugvöll verða tæpar 7,9 milljónir talsins yrði það þriðji mesti farþegafjöldi sem farið hefur um flugvöllinn á einu ári. Farþegar voru fleiri árin 2017 og 2018.

„Rétt er þó að hafa í huga að lítið má í raun út af bregða til að þessar spár rætist ekki,“ segir Guðmundur Daði. „Endurheimt flugfarþega um Keflavíkurflugvöll þarf að vera hraðari en í sumar og haust. Harðar og síbreytilegar sóttvarnaraðgerðir á landamærunum fæla erlend flugfélög frá landinu. Þessi þróun er mikið áhyggjuefni. Flugtengingar tapast eða þeim fjölgar a.m.k. ekki en þessar tengingar eru mikilvæg forsenda lífsgæða á Íslandi.“ Guðmundur Daði bendir á að sumarið hafi gengið vel á Keflavíkurflugvelli - endurheimtin verið betri en á samkeppnisflugvöllum annars staðar í heiminum.

„Keflavíkurflugvöllur hefur í ár endurheimt 79% þeirra áfangastaða sem voru í boði 2019 samanborið við 72%  í Kaupmannahöfn, 71% í Ósló, 67% í Stokkhólmi og 59% í Helsinki. Mikilvægt er að glutra þessu ekki niður nú þegar vel gengur.“







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga