flugfréttir
Boeing tekur fyrstu skóflustungu að viðhaldsmiðstöð í Flórída
Nýja viðhaldsmiðstöðin í Jacksonville í Flórída verður 34.000 fermetrar að stærð
Boeing hefur tekið fyrstu skóflustunguna að nýrri viðgerðar- viðhalds- og tæknimiðstöð í Jacksonville í Flórída sem verður allt að 34.000 fermetrar á stærð.
Viðhaldsstöðin verður aðalega ætluð fyrir flugvélar á vegum ríkisstjórnar Bandaríkjanna og verður hún staðsett á Cecil-flugvellinum og munu rísa alls átta flugskýli tengd miðstöðinni ásamt skrifstofuaðstöðu fyrir starfsmenn bandaríska flughersins og sjóhersins.
Miðstöðin verður nálægt flugflotastöð bandaríska hersins og þjálfunarsetri Boeing í
vesturhluta Jacksonville auk þess sem akademískar stofnanir tengdu flugi eru í næsta nágrenni.
„Teymið okkar hjá Boeing í Jacksonville eru sérfræðingar í umfangsmiklum breytingum
og uppsetningum á kerfum og búnaði fyrir herflugvélar og það er mikil ánægja að geta
verið í nánu samstarfi við viðskiptavini og samstarfsaðila á svæðinu í viðhaldsmálum af ýmsu tagi“, segir
Ted Colbert, forstjóri og framkvæmdarstjóri Boeing Global Services.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.