flugfréttir
BA hótar að minnka umsvif sín á Heathrow-flugvelli
- Segja að yfirvofandi gjaldhækkun eigi eftir að hafa slæm áhrif
Flugvélar British Airways við Terminal 5 flugstöðina á Heathrow-flugvelli
British Airways hefur hótað því að draga úr umsvifum sínum á Heathrow-flugvellinum ef yfirvofandi hækkun á flugvallargjöldum verður að veruleika.
Stjórn Heathrow-flugvallarins hefur áform um að hækka flugvallargjöld um allt að 76 prósent
og segir IAG (International Airlines Group), móðurfélag British Airways, að flugvöllurinn sé nú
þegar sá dýrasti í heimi er kemur að notkun og sé sífellt að verða dýrari og dýrari fyrir flugfélögin.
„Staðreyndin er sú að 40 prósent af þeim farþegum sem nota Heathrow-flugvöll eru
tengifarþegar sem eiga einungis leið hjá á leið til annarra áfangastaða og þeir gætu hæglega
farið aðrar leiðir með því að taka tengiflug til annarra flugvalla“, segir Luis Galleo, framkvæmdarstjóri
IAG.
„Að hækka flugvallargjöld mun ekki hjálpa til og ekki auka eftirspurnina - þess í stað mun það hafa
þveröfug áhrif. Ef gjöldin hækka þá veit ég að IAG er ekki eina flugfélagið sem íhugar aðgengið sitt að Heathrow“, bætir Galleo við.
Bresk flugmálayfirvöld og stjórn Heathrow-flugvallar lýstu því yfir fyrr í haust að til stæði
að hækka farþegagjöld úr 3.473 krónum á hvern farþega í upphæð sem nemur frá 4.342 krónum til
6.097 krónur sem fer eftir hvort um sé að ræða innanlandsflug eða langflug til fjarlægra áfangastaða.
Þá segir Time Alderslade, framkvæmdarstjóri samtakanna Airlines UK, að hækkunin eigi eftir að hafa skaðleg áhrif á þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar
eru á Heathrow-flugvellinum og þar á meðal gæti það haft áhrif á þriðju flugbrautina. - „Ef þeir eru ekki hæfir um að halda gjöldunum innan marka þá mun það verða dauðadómur fyrir þriðju flugbrautina“, segir Alderslade.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.