flugfréttir
Laumufarþegi lifði af dvöl í hjólarými í 33.000 fetum
Laumufarþeginn lifði af flug í tvær og hálfa klukkustund í 33.000 fetum yfir Mexíkóflóann
Laumufarþegi, sem hafði dúsað í tvær og hálfa klukkustund í hjólarými á Boeing 737-800 þotu hjá American Airlines, lifði af flugferð í 33.000 fetum yfir Mexíkflóann sl. helgi og var heill á húfi er starfsfólk á flugvellinum í Miami komu auga á hann við komuna til Bandaríkjanna.
Flugvélin, sem var að koma frá borginni Guatemala City, lenti í Miami sl. laugardag og hefur myndband
birst á Twitter sem sýnir laumufarþegann, sem er 26 ára gamall karlmaður, þar sem hann er vankaður
eftir flugferðina og telst heppinn að vera á lífi.
„Fólk er að taka gríðarlega mikla áhættu þegar það reynir að koma sér fyrir í sérstöku rými í flugvélum sem er
ekki ætlað farþegum“, segir í yfirlýsingu frá bandarísku landamæra- og tollgæslunni.
Fram kemur að farþeginn
hafi verið fluttur á sjúkrahús þar sem hann gekkst undir læknisskoðun í kjölfarið.
Flugferill Boeing 737 þotunnar á leiðinni frá Guatemala City til Miami
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) segja að um 129 laumufarþegar hafi gert tilraun til þess að koma sér
með svipuðum hætti til Bandaríkjanna frá árinu 1947 og hafi um 100 af þeim, eða 78%, látið lífið á leiðinni.
Laumufarþeginn, sem kom til Miami á laugardaginn, verður í haldi bandarískra stjórnvalda en gert er ráð
fyrir því að hann verði fluttur fljótlega úr landi til baka til Gvatemala.
Myndband af Twitter:
This man arrived to MIA in the landing gear of plane from a Guatemala flight. The flight was about two hours and thirty minutes and witness says he was unharmed😳✈️| #ONLYinDADE pic.twitter.com/qMPP5jjDvb
— ONLY in DADE (@ONLYinDADE) November 27, 2021
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.