flugfréttir
Fór í flugtak án heimildar
Flugvél af gerðinni deHavilland Dash 8 Q400 frá indverska flugfélaginu SpiceJet
Flugmálayfirvöld á Indlandi rannsaka nú atvik er farþegaflugvél frá indverska flugfélaginu SpiceJet af gerðinni deHavilland Dash 8 Q400 fór í flugtak án þess að hafa fengið flugtaksheimild.
Atvikið átti sér stað á flugvellinum í borginni Rajkot og var flugvélin á leið til Indira Gandhi flugvallarins í Delí
þann 30. desember síðastliðinn.
Þegar flugvélin var í flugtaksklifri frá flugvellinum létu flugumferðarstjórar flugmennina vita að þeir höfðu ekki
fengið flugtaksheimild og farið í loftið án hennar.
Flugmennirnir viðurkenndu mistök sín og hélt flugvélin áfram klifrinu upp í 25.000 fet og lenti vélin samkvæmt
áætlun í Delí skömmu síðar.
Indversk flugmálayfirvöld flokka atvikið sem „alvarlegt flugatvik“ sem er nú til rannsóknar og kemur fram
að flugmennirnir hafa verið leystir frá störfum tímabundið vegna þessa.
Yfirmaður hjá flugmálayfirvöldum segir að það verði tekið strangt á atvikinu þegar í ljós kemur hver ber ábyrgð á því.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.