flugfréttir

Sérfræðingar frá Bandaríkjunum á leið til Kína vegna flugslyssins

31. mars 2022

|

Frétt skrifuð kl. 07:34

Hluti af hægri væng þotunnar á slysstað

Bandarískir flugslysasérfræðingar frá samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB), starfsmenn frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) og sérfræðingar frá Boeing munu á næstu dögum halda til Kína til þess að aðstoða við rannsókn á flugslysinu er Boeing 737-800 farþegaþota frá China Eastern Airlines fórst þar í landi þann 21. mars síðastliðinn.

Kínversk stjórnvöld hafa gefið út vegabréfsáritun fyrir hóp sérfræðinganna frá NTSB og fyrir tæknilega ráðgjafa frá FAA og Boeing og segir í Twitter-færslu NTSB að vonast sé til þess að hópurinn haldi af stað fyrir helgi.

Hreyflaframleiðandinn CFM International á ekki von á að senda starfsmenn á sínum vegum til Kína en þeir verða NTSB innan handar þegar að því kemur.

Orsök flugslyssins er ennþá óljós en flugvélin var í áætlunarflugi frá borginni Kunming til Guangzhou þegar hún fórst um einni klukkustund eftir flugtak.

Rannsóknaraðilum í Kína tókst að finna hljóðrita vélarinnar þann 23. mars sl. auk þess sem búið er að finna brak úr öðrum hreyflinum og hluta af vængnum.

NTSB segir að stofnunin muni ekki gefa út neinar upplýsingar varðandi flugslysið og sé það í höndum kínverskra stjórnvalda að gera slíkt en flugmálayfirvöld í Kína hafa tilkynnt að von sé á bráðabirgðarskýrslu fyrir 20. apríl.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga