flugfréttir
ITA Airways semur um leigu á 12 Airbus-þotum frá AerCap
Airbus-þotur í litum ITA Airways
Ítalska flugfélagið ITA Airways hefur náð samkomulagi við írsku flugvélaleiguna AerCap um leigu á tólf Airbus-þotum, 10 þotum úr A320neo fjölskyldunni og tveimur breiðþotum af gerðinni Airbus A330neo.
Þoturnar verða afhentar frá og með næsta ári til ársins 2024 og segir flugfélagið ítalska, sem hóf
flugrekstur í október í fyrra, að afhendingarnar henti fullkomnlega í samræmi við flotastefnu flugfélagsins.
ITA Airways hefur í dag 56 þotur í flotanum sem eru allar frá Airbus fyrir utan eina sem er af Embraer-gerð
en flotinn samanstendur af 18 Airbus A319 þotum, þrjátíu af gerðinni Airbus A320 og sjö Airbus A330-200
breiðþotum.
Þær þotur sem ITA Airways á von á að fá afhentar eru fleiri en félagið hefur núna í flotanum
en félagið á von á að fá 86 þotur á næstu árum.
Meðal þeirra eru 22 Airbus A220 þotur sem verða afhentar frá og með næsta ári, 19 Airbus A320neo
þotur sem koma nýjar frá Airbus og einnig frá Air Lease Corporation og 20 Airbus A321neo þotur sem
einnig koma frá Air Lease Corporation.
Þá á félagið von á fimmtán A330-900 breiðþotum frá Airbus og Air Lease Corporation, 8 Airbus A35-900 þotum og verður
sú fyrsta afhent í júní í sumar og einni Embraer E190 þotu sem tekin er á leigu frá German Airways en ITA Airways
mun nota tvær E190 þotur sérstaklega fyrir áætlunarflug til London City flugvallarins og til Lúxemborg og til Genfar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.