flugfréttir

Air Lease pantar 32 MAX þotur til viðbótar frá Boeing

5. apríl 2022

|

Frétt skrifuð kl. 10:09

Air Lease Corporation hefur pantað fimmtíu Boeing 737 MAX þotur það sem af er þessu ári

Flugvélaleigan Air Lease Corporation hefur lagt inn pöntun til Boeing í 32 Boeing 737 MAX þotur til viðbótar en með því er heildafjöldi þeirra 737 MAX þotna, sem Air Lease hefur pantað, komin í 130 þotur.

Pöntunin samanstendur af þotum af gerðinni 737 MAX 8 og 737 MAX 9 en ekki er frekar tilgreint hversu margar þotur Air Lease er að panta af hvorri gerð.

Flugvélaleigan undirritaði samkomulag í febrúar um pöntunina en á sama tíma lagði fyrirtækið þá inn pöntun í 18 Boeing 737 MAX þotur og hefur Air Lease því pantað fimmtíu Boeing 737 MAX þotur á þessu ári.

Ekki kemur fram hvenær þoturnar verða afhentar en í fyrra gerði Air Lease ráð fyrir að fá 33 þotur afhentar á þessu ári, 31 þotu árið 2023 og 35 þotur árið 2024.

„Með Boeing 737 MAX þotunum þá geta viðskiptavinir Air Lease valið þotu sem er sveigjanleg fyrir ýmsa markaði er kemur að stærð og flugdrægi auk þess sem þoturnar bjóða upp á sambærileika fyrir flugmenn og áhafnir“, segir í yfirlýsingu frá Boeing.

Líkt og margir aðrir viðskiptavinir hafði Air Lease á sínum tíma afpantað einhverjar af þeim Boeing 737 MAX þotum sem búið var að panta vegna kyrrsetningarinnar á 737 MAX þotunum auk þess sem heimsfaraldurinn hafði áhrif á pantanirnar en upp á síðkastið hafa margar afpantanir verið dregnar til baka og viðskiptavinir Boeing hafa bætt við fleiri MAX þotum aftur á pöntunarlista.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga