flugfréttir
Bílastæði á Keflavíkurflugvelli í fullri notkun
Frá Keflavíkurflugvelli
Isavia hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að öll bílastæði við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli eru nú í fullri notkun.
„Isavia vill benda farþegum, sem eru á leið til útlanda og hyggjast leggja bíl sínum við flugstöðina, á að bílastæðin eru nú í fullri notkun. Því hvetjum við ferðalanga til þess að notfæra sér aðra samgöngumáta, líkt og hópbifreiðar, leigubíla, skutl eða strætó“, segir í tilkynningu.
Fyrr í þessari viku sendi Isavia frá sér tilkynningu um að bílastæðin við flugvöllinn gætu fyllst nú um páskana. Voru farþegar hvattir til að bóka sér bílastæði í bókunarkerfi á vef Keflavíkurflugvallar til að tryggja sér stæði um páskana og á betri kjörum en þegar greitt er við hlið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.