flugfréttir
Airbus kemur í veg fyrir verkföll í Broughton
Frá verksmiðjum Airbus í Broughton á Englandi
Evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus hefur náð að koma í veg fyrir verkfallsaðgerðir meðal starfsmanna í verksmiðjum í Bretlandi sem hafa samþykkt nýtt kjaratilboð.
Tilboðið samanstendur af 8.6 prósenta launahækkun á næstu 13 mánuðum auk
launahækkunar aftur í tímann og þá munu starfsmenn fá lengra
orlof á næstu tveimur árum.
Samþykktin kemur í kjölfar atkvæðagreiðslu sem fram fór í febrúar og var fyrirhuguðum
verkfallsaðgerðum frestað á meðan starfsmenn Airbus gerðu upp hug sinn og fóru
yfir tilboðið.
Um er að ræða 3.000 starfsmenn í verksmiðjum Airbus í Broughton á Englandi þar sem
vængir á þotum framleiðandans eru smíðaðir.
Airbus segir að það hafi ætíð verið markmiðið að standa við kjarasamninga en bendir
á að áhrifin af heimsfaraldrinum hefðu sett strik í reikninginn og allar slíkar væntingar
hefði því verið settar á hilluna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.