flugfréttir
Metfjöldi farþega í júní hjá Ryanair og Wizz Air
- Farþegafjöldinn komin yfir það sem var árið 2019 fyrir heimsfaraldur
Flugvélar Ryanair og Wizz Air
Evrópsku lágfargjaldaflugfélögin Ryanair og Wizz Air hafa bæði tilkynnt um gríðarlega fjölgun farþega í júní sem þykir endurspegla að eftirspurnin er að mestu leyti komin til baka eftir tveggja ára heimsfaraldur.
Alls voru 15.9 milljónir farþega sem flugu með Ryanair í júní en til samanburðar
þá flugu 14.2 milljónir með félaginu í júní árið 2019 sem þýðir að farþegafjöldinn
er komin yfir þann fjölda sem var fyrir heimsfaraldurinn og hefur því
fjölgað um 1.7 milljón í þeim mánuði.
Sætanýtingin hjá Ryanair í júní var 95 prósent sem er hæsta sætanýting
sem flugfélagið hefur séð eftir faraldurinn.
Ryanair stefnir á að flytja 165 milljónir farþega fyrir enda marsmánaðar á næsta
ári eða við lok fjármálaársins en til samanburðar þá flugu 149 milljónir
með félaginu fyrir heimsfaraldur.
Þá flugu 4.3 milljónir farþega með Wizz Air í júní síðastliðnum sem er næstum
því milljón fleiri farþegar en í júní árið 2019 þegar 3.4 milljónir flugu með félaginu
áður en faraldurinn skall á.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.