flugfréttir
Wizz Air dregur úr umsvifum til að minnka raskanir í sumar
Flugvélar Wizz Air
Ungverska lágfargjaldafélagið Wizz Air hefur ákveðið að draga úr fyrirhuguðum auknum umsvif og sætaframboði um 5 prósent til þess að takmarka þær raskanir sem orðið hafa á flugáætlun félagsins nú þegar ferðatímabilið stendur sem hæst.
Wizz Air segir að það hafi nú þegar náð að auka lipurð í leiðarkerfinu með því að aðlaga
flugáætunina betur og þá einna helst á þeim flugleiðum þar sem tíðni seinkanna var há
en félagið hefur einnig þurft að aflýsta óvenju mörgum flugferðum í sumar.
Wizz Air hafði gert ráð fyrir því að auka sætaframboð um 40% á á tímabilinu frá júlí fram í september
samanborið við sama tímabil árið 2019 en flugfélagið hefur nú dregið þau áform til baka
niður í 35 prósent.
Flugfélagið segir að seinkanirnar stafi að mestu leyti af háu eldsneytisverði og auknum
rekstrarkostnaði sem hefur næstum tvöfaldast á stuttum tíma.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.