flugfréttir

FAA varar við hættu í eldvarnarkerfi á Boeing 787

12. júlí 2022

|

Frétt skrifuð kl. 11:53

Frá verksmiðjum Boeing í Everett

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa sent frá sér viðvörun vegna mögulegs vandamáls með eldvarnarkerfi í hreyflum á ákveðnum Boeing 787 þotum.

Stofnunin segir að um sé að ræða rofa sem stjórnar búnaði sem tengist brunakönnum í hreyflum vélanna sem er ætlað að ráða niðurlögum elds ef slíkar aðstæður koma upp.

FAA gaf frá sér yfirlýsingu þann 7. júlí sl. þar sem varað er við að aðskotahlutir gætu átt greiða leið eftir að skipt var rofa á nokkrum Boeing 787 þotum vestanhafs og gæti það skapað vandamál.

Boeing og framleiðandi á búnaði sem á í hlut hafa nú þegar gert viðeigandi flugrekendum viðvart vegna vandamálsins og eru um 132 Dreamliner-þotur vestanhafs sem eiga hlut að máli.

Fram kemur að ef flugmenn geta ekki notað rofann vegna vandamálsins, ef upp kemur eldur, gæti það orðið til þess að ómögulegt verður að slökkva eld í hreyflunum og ekki hægt að slökkva á hreyflunum sem er hluti af neyðarviðbrögðum.

Boeing segir að þeir eigi í samstarfi við bandarísk flugmálayfirvöld vegna vandans en vilja ekki greina nánar frá um hvað vandamálið snýst um í smáatriðum.

Vandamálið er eitt af þeim mörgum sem upp hafa komið er snýr að Boeing 787 þotunum og hefur orðið gríðarleg röskun á afhendingum á nýjum Dreamliner-þotum vegna vandamála við framleiðslu auk þess sem sum atriði í framleiðslu hafa ekki staðist gæðakröfur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga