flugfréttir

ALPA fordæmir tillögur til að breyta 1.500 tímareglunni

- ALPA segir að ekki sé til neitt sem heitir flugmannaskortur vestanhafs

12. júlí 2022

|

Frétt skrifuð kl. 13:40

ALPA segir að tillögur flugfélaganna tveggja sé ógnvænleg tilraun til þess að draga úr einum mestu úrbótum sem gerðar hafa verið á flugöryggi í landinu.

Félag bandarískra atvinnuflugmanna (ALPA) hefur sent frá sér formlega kvörtun í kjölfar tillögu frá tveimur bandarískum flugfélögum sem hafa komið fram með hugmyndir um hvernig væri hægt að draga úr flugmannaskortinum vestanhafs sem er að mestu leyti tilkomin vegna reglu um lágmarksflugtíma flugmanna sem miðast við 1.500 flugtíma.

ALPA, sem fer fyrir 65.000 flugmönnum og 40 flugfélögum, sendi frá sér bréf til samgönguráðuneytis Bandaríkjanna þann 8. júlí síðastliðinn þar sem fram kemur að tillögur flugfélaganna tveggja, Republic Airways og SkyWest Airlines, sé ógnvænleg tilraun til þess að draga úr einum mestu úrbótum sem gerðar hafa verið á flugöryggi í landinu.

Bæði Republic Airways og SkyWest Airlines hafa lagt fram áætlanir um að leyfa flugmönnum, með minni flugreynslu en 1.500 tíma, til þess að komast í störf flugmanna sem myndi eyða flöskuhálsinum sem veldur skorti á flugmönnum í dag í Bandaríkjunum.

„Republic og SkyWest eru greinilega ekki að finna neina leið til þess að reka flugfélag án þess að láta það bitna á flugöryggi“, segir m.a. í yfirlýsingu frá Joe DePete, yfirmanni ALPA, og bendir hann á að skattgreiðendur séu að niðurgreiða rekstur þessara flugfélaga og séu þeir á sama tíma að fara fram á að dregið verði úr aðgerðum sem gripið var til þess að efla flugöryggi - aðgerðir sem hafa orðið til þess að flugslysum hafi fækkað um 99.8 prósent.

Í apríl á þessu ári fór Republic Airways fram á undantekningu frá FAA fyrir atriðum sem varða þjálfun flugmanna innan veggja flugfélagsins og benti flugfélagið á að sú þjálfun sem þeir bjóða upp á samsvari þeirri þjálfun sem herflugmenn fá í bandaríska flughernum en herflugmenn geta sótt um starf í atvinnuflugi vestanhafs með helmingi færri flugtíma eða eftir að þeir hafa náð 750 heildarfartímum.

Þá sótti SkyWest Airlines um leyfi til þess að fljúga leiguflug á stuttum flugleiðum með flugvélar sem taka 30 farþega undir sérstöku leyfi þar sem reglan um 1.500 flugtíma á ekki við.

Á meðan ALPA hefur lýst því yfir að þeirra mati sé ekki til neitt sem heitir flugmannaskortur þá hafa nokkur flugfélög í Bandaríkjunum þurft að fella niður flugferðir og draga úr flugferðum vegna skorts á flugmönnum og þá sérstaklega eftir að flugiðnaðurinn hefur verið að taka við sér eftir heimsfaraldurinn.

Flugráðgjafarfyrirtækið Future and Active Pilot Advisors (FAPA) hafði greint frá því að árið 2022 þyrftu bandarísk flugfélög að ráða 13.000 flugmenn en samkvæmt upplýsingum frá FAA þá voru gefin út 5.020 ný atvinnuflugmannsskírteini árið 2021.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga