flugfréttir

Tíðni stærri þyrlna eykst vegna hækkandi eldsneytisverðs

15. júlí 2022

|

Frétt skrifuð kl. 01:23

Fjölun hefur orðið á notkun með stórum þyrlum sem rakið er til hækkandi verðs á flugvélaeldsneyti

Hækkandi verð á þotueldsneyti, sem hefur aldrei áður verið eins hátt, er farið að hafa þau áhrif á þyrlumarkaðinn að byrjað er að fljúga stærri þyrlum í stað smærri þyrlna í ýmsum iðnaði og þar á meðal þar sem verið er að nota þyrlur í flugi til og frá olíuborpöllum.

Í tölfræði sem flugfréttamiðillinn Flightglobal.com hefur undir höndum kemur fram að tíðni flugferða með stórum þyrlum og meðalstórum þyrlum hefur aukist að undanförnu en með því er hægt að koma stærri gögnum um borð og fleiri farþegum við ýmsar aðstæður.

Fjölgunin nemur 11 þyrlum í ár sem samsvarar 4.5 prósent aukningu samanborið við sama tímabil árið 2021 en í fyrra voru 240 stórar þyrlur í notkun í þyrluflugi en eru í dag 251 talsins og þá hefur flugferðum með slíkum þyrlum aukist um 5 prósent.

Steve Robertson, yfirmaður fyrirtækisins Air & Sea, segir að þrátt fyrir að verð á Brent-hráolíunni hafi lækkað úr 123 dollurum á hverja tunnu niður í 97 dali þá sé það enn töluvert hærra verð en þegar tunnan var á 24 dali í apríl árið 2020.

„Það eru sumar flugvélartegundir, sem engum hefði dottið í hug að fljúga fyrir ári síðan, sem eru farnar að snúa aftur í notkun í dag“, segir Robertson.

Meðal stærri þyrlna sem eru farnar að fljúga meira í dag m.a.v. fyrir ári síðan eru Sikorsky S-92, Airbus Helicopters H225 og Leonardo AW189.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga