flugfréttir

Sofnuðu báðir og yfirflugu brautina í 37.000 fetum

- Vöknuðu við hljóðið er sjálfstýringin aftengdist

19. ágúst 2022

|

Frétt skrifuð kl. 13:21

Flugvélin var af gerðinni Boeing 737-800 og var á leið frá Khartoum í Súdan til Addis Ababa í Eþíópíu sl. mánudag

Báðir flugmennirnir um borð í farþegaþotu frá Ethiopian Airlines sofnuðu í stjórnklefanum með þeim afleiðingum að flugvélin flaug framhjá þeim stað sem til stóð að hefja lækkun í átt að áfangastaðnum.

Þotan, sem er af gerðinni Boeing 737-800, var í áætlunarflugi frá Khartoum í Súdan til Addis Ababa þann 15. ágúst síðastliðinn og var vélin í 37.000 feta hæð þegar þreyta sveif á báða flugmennina sem hurfu inn í draumalandið.

Flugvélin fór fram hjá þeirri staðsetningu sem lækkun átti að hefjast en um er að ræða staðsetningarpunkt sem nefnist TOD sem stendur fyrir „top of descent“.

Flugvélin hélt áfram að fljúga ferilinn sem búið var að setja inn í flugtölvu vélarinnar (FMC) og fylgdi ferlinum að aðflugsleiðinni en þó án þess að lækka flugið og var áfram í farflugshæð á meðan þeir voru sofandi.

Fram kemur að flugumferðarstjórn reyndi nokkrum sinnum að ná á flugmönnunum en án árangurs. Samkvæmt upplýsingum frá ADS-B kemur fram að flugvélin hafi yfirflogið braut 25L í Addis Ababa í 37.000 fetum.

Eftir að hafa yfirflogið brautina og farið sjálfkrafa í „missed approch“ aftengdist sjálfstýringin með tilheyrandi viðvörunarhljóði sem náði að vekja báða flugmennina og tóku þeir við stjórninni og lentu þeir vélinni heilu á höldnu 25 mínútum síðar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga