flugfréttir

BOC Aviation afskrifar sautján flugvélar í Rússlandi

19. ágúst 2022

|

Frétt skrifuð kl. 14:02

BOC Aviation gerir ekki ráð fyrir að ná til baka 17 flugvélum í Rússlandi en leigusamningum á þeim var rift í mars á þessu ári

Flugvélaleigan BOC Aviation í Singapore hefur afskrifað sautján flugvélar sem eru staðsettar í Rússlandi en afskriftin nemur 112 milljörðum króna.

BOC Aviation birti nýlega uppgjör sitt eftir fyrri helming ársins og tapaði flugvélaleigan 43 milljörðum króna sem að mestu má rekja til þeirra flugvéla sem eru fastar í Rússlandi í flota rússneskra flugfélaga.

„Þann 30. júní síðastliðinn voru sautján flugvélar, sem eru í eigu fyrirtækisins og búið var að rifta leigusamningi vegna, fastar í Rússlandi og teljum við ólíklegt að hægt verði að endurheimta þær í náinni framtíð“, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Með flugvélunum sautján minnka eigur BOC Aviation um 4% og er verðmæti eigna fyrirtækisins í dag um 22.8 milljarðar Bandaríkjadalir samanborið við 31 milljarð í desember í fyrra. Þrátt fyrir þetta er lausafjárstaða BOC Aviation mjög sterk í dag og nam hún 454 milljónum dala á síðustu sex mánuðum.

BOC Aviation hefur einnig tilkynnt að fyrirtækið hafi frestað afhendingum á nokkrum flugvélum vegna skorts hjá birgjum er kemur að framleiðslu á nýjum flugvélum og vegna skorts á starfsfólki í flugvélaverksmiðjum.

BOC Aviation hefur í dag 390 flugvélar í sinni eigu og hefur þeim fjölgað um 10 flugvélar frá því í desember í fyrra.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga