flugfréttir
Lufthansa býr sig undir verkfalls meðal flugmanna
Flugvélar í flota Lufthansa
Þýska flugfélagið Lufthansa undirbýr sig nú fyrir verkfallsaðgerðir meðal flugmanna eftir að fjögurra daga kjaraviðræður milli stjórnar félagsins og starfsmannafélagsins Vereinigung Cockpit fóru út um þúfur.
Seinustu samningaviðræður fóru fram sl. fimmtudag án árangurs og kemur fram að ekki hafi náðst
að taka skref í rétta átt.
Þeir flugmenn, sem fljúga fyrir Lufthansa og Lufthansa Cargo, og eru meðlimir í
verkalýðsfélaginu Vereinigung Cockpit kusu um verkfallsaðgerðir í júlí í þeim tilgangi
að athuga hver samstaðan væri fyrir því að berjast fyrir betri kjörum en niðurstöðurnar
voru afgerandi.
Í yfirlýsingu frá starfsmannafélaginu kemur fram að töluvert langt sé í landi að menn
séu að ná einhverju samkomulagi í viðræðunum
en mestu máli skipti sé að ná áreiðanlegum niðurstöðum sem hægt er að treysta á í kjarabaráttunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.