flugfréttir
Flugmenn í handalögmálum í stjórnklefa í miðju flugi
- Flugfreyja náði að stía þeim í sundur
Atvikið átti sér stað í júní árið 2021 í flugi á milli Genf og Parísar
Air France hefur sagt tveimur flugmönnum upp störfum eftir að til handalögmála kom á milli þeirra í stjórnklefanum í áætlunarflugi frá Genf til Parísar.
Fram kemur að slagsmálin hafi brutist út í kjölfar rifrildis eftir að flugmaðurinn neitaði
að fylgja ákveðnum fyrirmælum frá flugstjóranum en fram kemur að flugstjórinn hafi
tekið í kragann á skyrtu flugmannsins og því næst slegið hann utan undir en flugfreyja
um borð náði að stía þeim í sundur.
Fréttin um atvikið birtist nýlega í dagblaðinu La Tribune og segir að atvikið sé eitt
af mörgum hjá Air France sem franska rannsóknarnefnd flugslysa (BEA) hefur lýst áhyggjum yfir en þetta
tiltekna atvik átti sér stað í júní árið 2021.
Meðal annarra atvika sem ratað hafa inn á borð hjá flugslysanefndinni er atvik þegar
flugmenn á Airbus A330 breiðþotu tilkynntu ekki um eldsneytisleka og þá átti sér stað
atvik þar sem flugmennirnir gleymdu að ræsa hreyfil fyrir flugtak.
Í skýrslu frá BEA kemur fram að svo virðist vera að einhverjar áhafnir hjá Air France
eigi tilhneigingu til þess að vanmeta hversu nauðsynlegt er að framfylgja verklagsreglum
sem eru til staðar til þess að tryggja öryggi í flugi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.