flugfréttir

Skortur á stjórnklefagluggum fyrir nýjar Boeing 787 þotur

31. október 2022

|

Frétt skrifuð kl. 08:01

Dreamliner-þota í framleiðslusal Boeing

Skortur er af ýmsu tagi af íhlutum fyrir nýjar farþegaþotur en framkvæmdarstjóri Lufthansa bendir á að töf hefur orðið á afhendingum á nýjum Dreamliner-þotum til flugfélagsins þýska þar sem skortur er hjá þeim birgjum sem framleiða gluggana í Boeing 787 þoturnar en Lufthansa hefur aðeins fengið eina Dreamliner-þotu afhenta frá Boeing.

Carsten Spohr, framkvæmdarstjóri Lufthansa, ræddi um það vandamál sem steðjar að í flugiðnaðinum er kemur að skorti á íhlutum og telur hann að það vandamál eigi eftir að vara eitthvað lengur.

Spohr nefnir að þrátt fyrir að eftirspurn eftir farþegaflugi sé að aukast hratt eftir heimsfaraldurinn þá sé flöskuháls á framboði hjá mörgum flugfélögum vegna vandamála hjá birgjum sem er að valda gríðarlegum seinkunum á afhendingum nýrra flugvéla.

Nefnir hann skort á rúðum í stjórnklefa á Dreamliner-þotum sem rekja má til skorts á starfsfólki í þeim verksmiðjum sem framleiða gluggana auk skorts á hráefni.

Spohr segir að það sama má segja um skort á starfsfólki á flugvöllum sem olli miklum seinkunum og örtröð á mörgum flugvöllum í sumar og nefnir hann að enn á eftir að manna fullt af stöðum í flugiðnaðinum og þá telur hann að það eigi eftir að taka nokkur ár fyrir bandarísk flugfélög að finna lausn á flugmannaskortinum vestanhafs.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga