flugfréttir
Croatia Airlines pantar sex Airbus A220 þotur
Tölvugerð mynd af Airbus A220 í litum Croatia Airlines
Croatia Airlines hefur lagt inn staðfesta pöntun til Airbus í sex farþegaþotur af gerðinni A220-300 en flugfélagið króatíska stefnir einnig á að taka á leigu níu þotur til viðbótar sömu gerðar.
Stefna flugfélagsins er að hafa fimmtán Airbus A220 þotur í flotanum en Croatia Airlines
verður sextánda flugfélagið í heiminum til þess að hafa A220 í flota sínum.
Í tilkynningu frá flugfélaginu segir að A220 þoturnar muni leysa af hólmi eldri flugvélar en floti
félagsins samanstendur í dag af flugvélum af gerðinni Airbus A320 og A319 auk þess sem félagið
hefur einnig De Havilland Dash 8-400 vélar.
Croatia Airlines hefur pöntun inni hjá Airbus í fjórar A320neo þotur en ekki kemur fram hvort
að pöntunin í A220 þoturnar komi í staðinn fyrir þær.
Þá hefur Croatia Airlines gefið í skyn að stefnan sé að flugfélagið muni á næstu árum verða eingöngu með A220 þotur í flotanum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.