flugfréttir

Síðastu júmbó-þotunni ýtt úr samsetningarsalnum í Everett

- 54 ára framleiðsla á Boeing 747 tekur enda

7. desember 2022

|

Frétt skrifuð kl. 14:18

Síðasta júmbó-þotan verður afhent til Atlas Air á næsta ári

Tímamót áttu sér stað í vikunni er síðustu júmbó-þotunni var ýtt út úr samsetningarsal Boeing í Everett eftir 54 ára framleiðslu.

Síðasta júmbó-þotan er fraktþota af gerðinni Boeing 747-8F sem verður afhent til Atlas Air á næsta ári en flugfélagið hefur í dag sjö slíkar júmbó-þotur í flota sínum.

Það var árið 1967 sem að Boeing hóf framleiðslu á fyrstu Boeing 747 þotunni sem fékk viðurnefnið „júmbó-þotan“ og hafði hún mikil áhrif á flugiðnaðinn og hefur í meira en öld verið ein þekktasta flugvélategund heims.

„Í meira en hálfa öld hafa tugi þúsundir starfsmanna hjá Boeing komið að framleiðslu júmbó-þotunnar sem hefur svo sannarlega breytt heiminum. Við erum stoltir af því að þessi flugvél á enn eftir að fljúga víða um heim um ókomin ár“, segir Kim Smith, yfirmaður yfir Boeing 747 og 767 deildinni hjá Boeing.

Boeing framleiddi alls 1.572 júmbó-þotur á 54 árum

Samkvæmt upplýsingum og tölfræði yfir flugvélategundir þá eru sjötíu farþegaútgáfur af Boeing 747 í notkun í heiminum í dag en alls voru 1.572 eintök af júmbó-þotunni framleidd.

Örlög júmbó-þotunnar voru að mestu ráðin snemma eftir að heimsfaraldurinn braust út um leið og eftirspurn eftir flugi snarminnkaði en flugfélög á borð við Qantas, Thai Airways, KLM og British Airways tóku úr umferð sínar Boeing 747-400 þotur mjög fljótlega í kjölfarið.

Júmbó-þotan nýtur þó enn vinsælda meðal fraktflugfélaga en einhver fraktflugfélög eru þó farin að skipta þeim út fyrir nýrri tveggja hreyfla fraktflugvélar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga