flugfréttir

Flugfreyju sagt upp störfum fyrir að vera of stór fyrir sætin

- Náði ekki að spenna sætisólarnar

12. desember 2022

|

Frétt skrifuð kl. 07:02

Flugfreyjan fer fram á skaðabætur frá Spirit Airlines

Flugfreyja ein hefur höfðað mál gegn fyrrverandi vinnuveitanda sínum, bandaríska flugfélaginu Spirit Airlines, eftir að henni var sagt upp störfum á þeim forsendum að hún hefði verið of þung og stór um sig til þess festa sætisólarnar í sætum sem eru ætluð þeim í flugvélinni.

Um er að ræða sæti sem á ensku nefnast „jump seat“ og vildi flugfélagið meina að hún væri of mikil um sig til þess að ná að spenna á sig sætisólarnar.

Mál flugfreyjunnar, sem er af afrískum-amerískum uppruna, var tekið fyrir í dómsal í Flórída þann 16. nóvember sl. og segir að flugfreyjan hafi staðist þjálfun er hún hóf störf sem flugfreyja og uppfyllt öll skilyrði og þar á meðal að festa sætisólarnar.

Flugfreyjan flaug sitt fyrsta flug þann 3. september árið 2021 á þotu af gerðinni Airbus A319 og tilkynnti flugfreyjan þá að hún næði ekki að spenna beltið og var henni ekki leyft að nota framlengingu á beltið.

Flugfreyjunni var gert að fara frá borði og kölluð var til önnur flugfreyja í hennar stað með tilheyrandi seinkun og var hún send í leyfi.

Fimm dögum síðar fékk hún bréf frá flugfélaginu þar sem hún var boðuð á fund hjá Spirit Airlines og var ákveðið að hún þyrfti að sína fram á hvort hún gæti notað sætisólarnar eða ekki.

Þann 8. október 2021 mætti hún til þess að sína fram á hvort hún gæti notað beltin í sætunum sem eru ætluð flugfreyjunum og kom í ljós að sætisólarnar og sætin sjálf voru of lítil fyrir hana. Fimm dögum síðar fékk hún bréf með tilkynningu um að hún gæti ekki starfað hjá flugfélaginu eins og er og fékk hún endanlegt uppsagnarbréf þann 3. nóvember.

Spirit Airlines segir að flugfélagið hafi gefið henni tækifæri á að koma sér í form frá 3. september til 12. október í von um að hún myndi passa í sætin.

Lögmaður flugfreyjunnar bendir á að önnur flugfreyja, sem er af hvítum uppruna, hafi fengið mun lengri tíma til þess að koma sér í form og er Spirit Airlines sakað um að kynþáttamismunun með þessari ákvörðun sinni.

Flugfreyjan fer fram á skaðabætur þar sem hún segist hafa gengið í gegnum andlega angist vegna málsins, orðið fyrir vanlíðan og þyngdartapi auk launamissis.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga