flugfréttir
Hægt á framleiðslu á Boeing 787 í Suður-Karólínu
Frá verksmiðjum Boeing í North Charleston í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum
Boeing hefur hægt á framleiðslunni á þeim Dreamliner-þotum sem smíðaðar eru í verksmiðjunni í North Charleston í Suður-Karólínu.
Ástæðan er sögð vegna stöðu hjá birgjum sem hefur orsakað seinkun á afhendingum
á íhlutum.
Framleiðsluhraðinn á Boeing 787 þotum var einnig í hægari kantinum í október
í haust og lýsti Boeing því yfir þá að til stæða að auka afköstin á ný upp í fimm
Dreamliner-þotur í mánuði.
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) stöðvuðu vottanir á nýjum Dreamliner-þotum í maí
í fyrra og voru engar þotur afhentar í meira en ár þar til í ágúst á þessu ári að afhendingar
hófust að nýju.
Síðan þá hefur Boeing glímt við skort á starfsfólki auk skorts á íhlutum
til þess að ná framleiðslunni á Dreamliner-þotunum aftur á strik og hefur David
Calhoun, framkvæmdarstjóri Boeing, lýst því yfir að framleiðandinn eigi eftir að glíma
við ýmiss vandamál er varðar Dreamliner-þoturnar alveg fram á næsta ár.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.