flugfréttir

Fjölda aflýstra flugferða hjá Southwest óásættanlegt

27. desember 2022

|

Frétt skrifuð kl. 15:26

Í gær felldi Southwest Airlines niður 70% af öllum flugferðum félagsins í Bandaríkjunum

Samgönguráðuneyti Bandaríkjanna segir að það sé ekki viðunandi sá fjöldi flugferða sem að flugfélagið Southwest Airlines aflýsti vegna kuldakastsins sem reið yfir vestanhafs yfir jólin.

Samkvæmt upplýsingum frá vefsíðunni FlightAware þá var yfir 2.790 flugferðum aflýst í Bandaríkjunum yfir jólin en af þeim voru 89% flug á vegum Southwest Airlines sem felldi niður 2.487 flugferðir.

Samgönguráðuneytið hefur lýst yfir áhyggjum sínum varðandi þess fjölda sem tilheyrir Southwest Airlines auk þeirra seinkanna sem flug á vegum félagsins varð fyrir og einnig vegna lélegrar þjónustu við viðskiptavini.

Samgönguráðuneytið segir að til standi að rannsaka nánar hvort að fjöldi flugferða sem Southwest felldi niður hafi verið eitthvað sem að flugfélagið hefði getað haft betur stjórn á og hvort að flugfélagið hafi framfylgt stefnu sinni varðandi farþegaþjónustu.

Bob Jordan, framkvæmdarstjóri Southwest Airlines, segir að snjóstormurinn Elliot hafi valdið gríðarlegu álagi á flugvallarstarfsfólk flugfélagsins með þeim kulda sem fylgdi óveðrinu.

Talsmaður Southwest segir að veðrið sé ekki enn gengið niður allsstaðar og séu fjöldi aflýstra flugferða enn að hrannast upp á hverjum degi frá 100 upp í 150 og endi síðan í 1.000 flugferðum sem felldar eru niður.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga