flugfréttir
Uppfærslu á ratjsárhæðarmælum skal lokið í febrúar 2024
- Um 100 atvik þar sem flugvélar urðu fyrir truflunum af 5G dreifikerfinu
FAA gerði í dag tillögu að allir ratsjárhæðarmælar verði uppfærðir til þess að koma í veg fyrir truflanir sem stafa af því að 5G dreifikerfið og hæðarmælar í flugvélum notast v
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) gera ráð fyrir að búið verði að uppfæra ratsjárhæðarmála (radio altimeter) um borð í öllum farþegaflugvélum, sem fljúga um bandaríska lofthelgi, fyrir febrúar árið 2024 vegna þeirra truflana sem að nýja 5G dreifikerfið getur haft.
FAA gerði í dag tillögu að allir ratsjárhæðarmælar verði uppfærðir til þess að koma í veg fyrir truflanir sem stafa af því að
5G dreifikerfið og hæðarmælar í flugvélum notast við tíðnir sem eru mjög nálægt hvor annarri og er bent á að nú
þegar hafi borist yfir 100 tilkynningar frá flugmönnum sem segjast hafa orðið fyrir truflunum sem ollu því að lesning
úr ratsjárhæðarmælum var ekki áreiðanleg.
FAA segir að með fölsum viðvörunarhljóðum í stjórnklefa vegna truflana gæti það orðið til þess að flugmenn fari að verða
ónæmir fyrir viðvörunum og yfirsjást þegar loksins kemur viðvörunarhljóð sem er að vara við hættu sem á sér stað og ef
það hljóð sé hunsað geta það boðið hættunni heim.
„Bandarísk flugmálayfirvöld eru að koma með tilmæli sem er ætlað að tryggja að bæði flugið og 5G dreifikerfið geti starfað
áfram á öruggan hátt“, segir í yfirlýsingu sem FAA gaf frá sér í dag.
Fjarskiptafyrirtækin AT&T og Verizon tóku í notkun fyrstu 5G sendana í janúar árið 2022 og notar kerfið tíðni frá 3.700 til 3.980
MHz á meðan ratsjárshæðarmælar nota 4.200 til 4.000 MHz. Bæði FAA og önnur samtök innan flugsins höfðu í nokkur ár varað við
mögulegri röskun þar sem tíðnirnar eru það nálægt hvor annarri.
Samt sem áður eru til nokkrar gerðir af ratsjárhæðarmælum sem eru minna næmir fyrir truflun og segir FAA að sumar flugvélar
þurfa ekki á uppfærslu á mælum að halda og ná tilmælin ekki til þeirra.
FAA segir að tekið verði á móti athugasemdum í 30 daga en flugfélagasamtökin Airlines for America (A4A) hafa varað við því
að staða hjá birgjum gæti gert það að verkum að erfiðlega verði fyrir einhver flugfélög að uppfæra sína mæla fyrir febrúar
á næsta ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.