flugfréttir

Airbus sýnir nýjan litabúning fyrir þriðju A321XLR þotuna

14. febrúar 2023

|

Frétt skrifuð kl. 07:04

Airbus A321XLR þotan var máluð á dögunum í Hamborg í Þýskalandi

Ein af A321XLR tilraunarþotum Airbus hefur verið máluð í sérstökum A321XLR lituaþema og birti flugvélaframleiðandinn evrópski myndir af þotunni í gær.

Segja má að litabúningurinn sé gagnvirkur þar sem fólk getur tekið myndir af QR-kóðum sem málaðir hafa verið á skrokk vélarinnar og er með því hægt að fá upp slóð til þess að nálgast nýjustu fréttir um Airbus A321XLR þotuna, upplýsingar og þá viðburði sem eru framundan varðandi þotuna.

Þá er hægt að fá upplýsingar um stöðuna á flugprófunum og verða þær upplýsingar uppfærðar jafnóðum en í augnablikinu má meðal annars fá slóð sem sýnir myndband af málningarvinnunni sem fram fór í verksmiðjunum í Hamborg í Þýskalandi.

Þotan sem um ræðir ber skráninguna F-WWAB og hóf hún flugprófanir í október í fyrra og var þessi þota notuð m.a. í prófanir þar sem var hætt er við flugtak (rejected take-off tests) en hinar tvær tilraunaþoturnar eru F-WXLR og F-WWBZ.

Þegar A321XLR kemur á markaðinn mun hún verða langdrægasta farþegaþota heims í flokki þeirra sem kemur með einum gangi

Þegar A321XLR kemur á markaðinn mun hún verða langdrægasta farþegaþota heims í flokki þeirra sem kemur með einum gangi en flugdrægi þotunnar verður 4.700 mílur (nm) sem samsvarar 8.700 kílómetrum.

Airbus A321XLR mun því geta flogið 30 prósent lengri vegalengd heldur en hefðbundin Airbus A321neo og 15% lengri vegalengd heldur en A321LR.

Starfsmaður Airbus vinnur við að festa merkingar á þotuna







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga